09. desember 2011
Shadow Creatures, ungt hönnunarfyrirtæki rekið af systrunum Eddu og Sólveigu Rögnu Guðmundsdætrum, hafa gert styrktarsamning við Kríurnar. Af hverri seldri flík rennur ákveðin upphæð til Kríanna. Sjá umfjöllun á visir.is: http://visir.is/apps/pbcs.dll/gallery?Site=XZ&Date=20111209&Category=LIFID01&ArtNo=120909998&Ref=PH
Þetta er ómetanlegur stuðningur við Kríurnar og þau verkefni sem Kríurnar styðja í Namibíu. Hingað til hafa Kríurnar hlotið styrk frá menntamálaráðuneytinu og UNIFEM á Íslandi (nú UN Women) í tenglsum við komu Vicky Bam til Íslands í mars 2010 en Vicky er stofnandi og formaður Mother to Mother Support Group, sem lesa má um hér á síðunni (sjá stuðningsverkefni).
HIV smit breiðist nú hratt út meðal ungra kvennaí Afríku og oftar en ekki berst smit móður til barns við fæðingu. Þó er hægt að gera ýmsar varúðarráðstafanir til að draga úr líkum á smiti og að þessarri fræðslu, ásamt fjölmörgu öðru, stendur Vicky fyrir í Namibíu. Vicky stóð fram opinberlega og greindi frá eigin smiti á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars árið 2004 og var hún þá aðeins önnur konan í landinu sem hafði greint frá því á opinberum vettvangi að hún væri smituð. Það er í raun ótrúlegt að svo fáar konur (og karlar) greini frá smiti sínu í landi þar sem tíðni HIV-smit er einna hæst í heiminum.